Er litur líka tilfinning?
Updated: Sep 18
Ég hef alltaf haft sterkar skoðanir á litum bæði í umhverfi mínu og fatavali. Þegar ég rýni betur í afhverju það hafi þróast þannig, sé ég glögglega að þá gáfu mína erfi ég beint frá móður minni Edith Thorberg, sem bæði var myndlistamaður og stóð í sífelldum breytingum á æskuheimili okkar með því að lakka húsgögn og mála veggi. Ég hef mikla þörf til þess að tengja umhverfi mitt við náttúruna í kringum mig í gegnum liti og veit að mín sýn á litaval er sprottin uppfrá rómantíkskum tilfinningum því tengdu. Litir skapa tilfinningu.
Útfrá þessu öllu saman hellti ég mér út í litafræði og myndlist. Sé þessu svo öllu blandað saman og marghræra í, hefur myndast sannkölluð ástríða fyrir litum.

Val lita er eitthvað sem ég hef einnig þróað sýn mína á, í gegnum áratuga langt samstarf mitt við Slippfélagið. Þar hef ég meðal annars gefið út tvö litakort í nafni Fröken Fix ( og það þriðja í bígerð - mun fjalla sérstaklega um það seinna! )
Samstarf mitt við Slippfélagið hófst fyrir yfir tuttugu árum þegar ég var enn smotti í hönnunarþáttum og hefur alla tíð síðan verið einstaklega farsælt.
Í gegnum árin höfum við unnið saman að því að miðla þekkingu minni um liti og samsetningar til almennings og hefur Rúnar litameistari verið minn helsti haukur í horni í þeim efnum - með sína endalausu þolinmæði fyrir undirtónum.
Þegar Fröken Fix hönnunarstudio fagnaði tíu ára afmæli (2020) var þetta samstarf einmitt tilefni til að gefa út myndbönd með fróðleik um liti sem ég hef viðað að mér í gegnum árin.
Fyrir mér eiga litir fyrst og fremst að endurspegla umhverfið og birtuna, en ekki fylgja tískustraumum.
Ég hef alltaf lagt áherslu á að íslensk birta kalli á ákveðna liti sem vinnur með henni — dimmir vetur og björt sumur gera það að verkum að ekki allir litir njóta sín í okkar birtu. Undirtónar eru því mikilvægir sem og val með birtuskylirðum.
Þegar kemur að því hvernig best sé að velja liti á sitt eigið heimili, þá er mitt helsta ráð að byrja á að skoða birtuna í rýminu — hvaða átt gluggarnir snúa og hvernig birtan breytist yfir daginn og árstíðirnar.
Sem dæmi má nefna að í herbergjum sem snúa í há norður (sem yfir veturinn er frekar köld og hvít) væri besti kosturinn að nota hlýjan undirtón eins og til dæmis grágrænn, drappaður með pínu bleikum og svo framvegis
Fix tip# Ef þú ætlar að mála herbergi skaltu skoða í hvaða átt glugginn snýr. Finndu þitt eigið "trend" út frá því, frekar en að elta almennar tískustefnur.
Litur sem lítur fallega út á sýnishorni í búð getur virkað allt öðruvísi á vegg í dagsbirtu á móti kvöldlýsingu. Ég mæli líka alltaf með því að prófa litinn á staðnum áður en ákvörðun er tekin, því pínulítið sýnishorn gefur aldrei fulla mynd.
Fix tip # Settu upp prufur í rýminu sem eru amk 50 *50 cm bæði á móti glugga og í horni. Settu ávallt tvær umferðir á prufuna og skoðaðu hana bæði að kvöldi til og að degi til.
Annað sem skiptir mig miklu máli er að fólk hugsi ekki bara um einn vegg í einu, heldur heildarupplifunina af rýminu — hvernig litirnir tala saman á milli herbergja og skapa flæði í gegnum heimilið. Og síðast en ekki síst: ég hvet fólk alltaf til að velja liti sem endurspegla þeirra eigin persónuleika og því sem lætur þeim líða vel, frekar en það sem er "inni" þessa stundina. Hönnun og litaval eiga að vera skemmtileg upplifun, ekki streituvaldandi ákvörðun sem þarf að fylgja einhverjum ósýnilegum reglum.
Þegar kemur að skrifstofum er nálgunin á margan hátt öðruvísi en á heimilum, því þar þarf litavalið fyrst og fremst að styðja við vinnustaðamenninguna og vörmerkið sjálft.
Þegar fyrirtæki fá mig til liðs við sig legg ég alltaf áherslu á að lesa vel vörumerkið og menninguna á vinnustaðnum og spegla það svo í hönnuninni og litavalinu — litirnir eiga að segja sögu um fyrirtækið er, ekki bara líta vel út.
Annað áhersluatriði hjá mér er, að skrifstofurými þurfi að þjóna mörgum ólíkum þörfum yfir daginn — sum svæði kalla á ró og einbeitingu meðan önnur eiga að hvetja til samskipta og orku. Þess vegna vinn ég oft með ólíkar litapallettur eftir því hvaða hlutverki hvert svæði gegnir, frekar en að nota sama litinn í gegnum allt rýmið. Um leið vil ég alltaf ná fram hlýlegu andrúmslofti, jafnvel á vinnustað — að bæði starfsfólk og gestir finni strax að þeim sé tekið opnum örmum af umhverfinu. Það þarf ekki að vera kaldur eða ópersónulegur bragur á skrifstofu til að hún líti fagmannlega út.




Comments