Þegar vinnustaðurinn lifnar við og gleðin umlykur fólkið!
Updated: 3 days ago
Það er vissulega algengara að skrifstofu verkefni sem fela í sér fjármála- eða áhættustýringar viðskiptavini séu hönnuð í meiri „lúxus“ tilfinningu og útlit í huga. Marmari, ull og gull er jafnvel það sem okkur dettur fyrst í hug... En hér er viðskiptavinurinn borgin sjálf! Og hluti af þeirra útliti er gleði og manneskjuleg rými.

Við fórum því þá leið að velja litasamsetningu sem hefur sannað sig í litafræðinni - litir sem ekki bara auka framleiðni heldur uppliftir andanum.
Litapalletan og efnisvitundin er mjög fjölbreytt, en byggir á vörumerkja biblíunni í Reykjavík, en með Fröken Fix ívafi!
Þetta innanhúss hönnunarverkefni var mjög umfangsmikið og spannaði vinnu okkar frá september 2024 til loka febrúar 2026.
Mikil þróunarvinna og þarfagreining fór fram með hópum starfsmanna. Ég verð að taka það fram að einstaklega ánægjulegt var að vinna með þeim verkefnastjórum innan deildarinnar sem tóku að sér að láta þetta verkefni verða að veruleika. Mikil forvinna er á verkefnum af þessari stærðargráðu og var hluti þarfagreiningarinnar lokið þegar við komum að borðinu.
Þegar forvinnu og hönnun var svo lokið var útboði hleypt af stokkunum, sem tók nokkurn tíma í vinnslu en fór mjög vel fram.
Hér að neðan má sjá örfáar "fyrir" myndir sem gefa góða sýn hvernig vinnustaður þessi var áður en tekið var til hendinni.
Þróun vinnustaðarmenningar er okkur mjög mikilvæg og því horfum við ekki aðeins á breytingar á útliti út frá litasamsetningum og fjölbreytileika textíls, heldur mætum við einnig þörfum starfsmanna á fjölbreyttara vinnuumhverfi.
Sem hönnuðir sem vinna slíka vinnu, finnum við að starfsmenn vilja vera í opnum rýmum svo lengi sem kröfur um hljóðvist og lýsingu eru uppfylltar.
En vinnustaðir vilja líka fjölbreytt vinnuumhverfi. Þess vegna er ekki nóg að hafa einungis opnar skrifstofur og fullt af bókanlegum fundarherbergjum - það eru margir aðrir þættir sem spila inn í.


Í þessu gólfplani gátum við með tilfærslum bætt við fjölbreyttum fundarherbergjum. Þar má nefna opna ör-fundar möguleika - sem í þessu tilfelli við felldum inn í skápaeiningar og þar með nýttum við gólfpláss mjög vel.
Svo má nefna aðra kosti með opin fundarherbergi - þá án þess að hægt væri að bóka þau heldur bara til að setjast niður með samstarfsmanni til að ræða verkefni.

Við settum upp allskonar öðruvísi setusvæði inn á vinnusvæðum og í eldhúsinu reyndum við að skapa kaffihúsastemningu þannig að starfsfólk geta einnig unnið í slíku umhverfi kjósi þeir það.


Með því að hafa grunnvinnuborðin aðeins minni (140 cm) gátum við bætt öllum þessu nýju svæðum við - en einnig haldið fjölda bókanlegra fundarherbergja, bætt við tveimur stórum svæðum innan sömu fermetra og tveimur stórum svæðum fyrir starfsmenn. Bæði svokallað “war room” sem og stóru samveru herbergi með eitt flottasta útsýni borgarinnar að mínu mati. Allt spurning um skipulag.


Setustofuna kusu þau að kalla „hjartað“, rými til að safnast saman, fyrir starfsmenn til að skemmta sér, spila pílu eða horfa á leik. Einnig frábært svæði til að halda deildarfundi eða aðra samkomu.

Hið svokallaða “war room” ( hef því miður ekki gott íslenskt orð yfir það) er innréttað með eingöngu færanlegum húsgögnum. Slík svæði eru mikilvæg þar sem margar deildir koma saman, notað til verkefna í lengri eða skemmri tíma, sem ekki geta endilega verið innan deilda á hefðbundinn hátt.
Þegar unnið er með sterkt samspil milli lita og efnisvals kallar það á mikilvægi samspils lita og ljóss til þess að fá meiri dýpt, undirstrika bæði það sem þú vilt draga fram og setja í skugga. Kristján Kristjánsson lýsingahönnuður frá Hildiberg var með okkur í því að setja punktinn yfir i-ið varðandi lýsinguna. Kristján gerði það á mjög faglegan hátt og var með okkur allt frá byrjun þegar teikna þurfti lýsinguna inní verkteikningarnar og yfir endanlegar stillingar og val á einstaka ljósum.
Hljóðvistin var annað lykilatriði. Því eins og ég sagði hér að ofan er það manneskjuleg nálgun á móts við annars opið vinnusvæði. Vandað var til verka þar í gegnum allt svæðið. Það er órjúfanlegur hluti af því að starfsfólki líði vel innan veggja vinnunnar. Veggpanelar, borðpanelar, loftpanelar, hljóðvistarteppi og gluggatjöld áttu sér því ekki aðeins fagurfræðilegan tilgang heldur var gert ráð fyrir því að þessir hlutir stæðust hæðstu kröfur.
Hið manneskjulega er okkur öllum mikilvægt. Við eyðum talsverðum hluta ævinnar á vinnustaðnum og flest viljum fara heim að loknum vinnudegi með gleði í hjarta og bros á vör og má með sanni segja að forsvarsfólk þessa verkefni hafi lagt allan sinn metnað í að láta það gerast.




Comments