top of page

Spegill spegill herm þú mér...

FrokenFix
Oct 19
2 min read

Ég hef notað spegla mikið í gegnum tíðina í minni hönnun. Allt frá sérsmíðuðum stórum speglum, lituðum speglum og yfir í hagkvæma spegla sem hægt er að kaupa í verslunum eins og Jysk, Ikea eða Ilva.


Speglar eru frábært efni í innanhússhönnun og hafa ýmist verið notaðir til þess að stækka rými, blekkja augað og til þess að beina ljósi í nýjan farveg.

Það besta er, að það er engin ein rétt leið að nota þá og hver sem er getur úfært þá að marga vegu inná heimilinu.


Hér eru því nokkrar hugmyndir frá Fröken Fix sem þú getur vonandi nýtt þér inná heimilinu þínu.


Heill veggur /

Hægt er að láta skera út spegil til þess að fara yfir heilan vegg og líma hann upp hjá öllum helstu spegla og glerfyrirtækjum

Þú getur látið gera spegil með baklýsingu sem fer yfir stórt svæði ( sérstaklega skemmtilegt í andyri eða fataherbergjum)

Nota spegla hurðir á innréttingar.





Gangar / þröng rými / horn


Prufaðu að setja upp spegla í horn til dæmis!

Speglar á göngum er góð hugmynd - prufaðu að kaupa 3 eins spegla og setja þá upp langsum eða þversum.

Stór spegill fyrir aftan nett gangaborð með fallegum lampa á gefur fallegt yfirbragð.





Við innréttingar /

Speglar í stað flísa milli innréttinga er frábært hugmynd í minni eldhúsum

Speglar milli skápa eða á milli hillna gefur fallegt yfirbragð- sér í lagi ef um marga skápa er að ræða eins og í forstofum eða fataherbergjum



Til skrauts/ auka á náttúrulega birtu í rými.

Ég hef mjög oft sett spegil á mótvegg glugga til þess að endurvarpa enn frekar náttúrulegri birtu í rýminu.

Einnig má setja upp spegil til hliðar við glugga í sömu stærð til þess að fá það á tilfinninguna að það sé " annar gluggi" á veggnum

Mjög fallegt getur verið að setja upp safn af gömlum speglum saman, inná baði eða jafnvel upp við stiga.






Svo horfðu í kringum þig og skoðaðu betur hvaða tækifæri þú hefur heima hjá þér til þess að birta til og stækka í hvaða herbergi sem er!



Comments


bottom of page