top of page

Heimilið þitt á ekki að vera tímalaust!

FrokenFix
3 hours ago
2 min read

Með því að skella fram slíkri fullyrðingu veit ég að ég er í rauninni að fara á móts við það þá skoðun sem mjög margir hafa. Ég á á jafnvel í hættu að missa framtíðar viðskiptavini. Kollegar mínir munu margir ranghvolfa augunum.


En skoðum þetta aðeins betur...


Tímalaust útlit er... það sem ALLIR biðja um og vilja? Alls ekki.

En ég vil vera alveg skýr, ég skil mjög vel þá skoðun. Enginn vill í raun heimili sem undirstrikar einungis eitt ákveðið tímabil.


EN...ég held líka að þegar við viljum eitthvað sem er "tímalaust" erum við hugsanlega stundum að biðja um "Get ég tekið ákvörðun NÚNA, sem ég mun aldrei sjá eftir, aldrei vaxa uppúr og enginn mun nokkurn tíma gagnrýna?

Það er akkúrat sá hluti sem ég leyfi mér að gagnrýna. Af hverju ættum við að ætlast til þess varðandi okkar heimili þegar við ætlumst ekki til þess af sjálfum okkur?


Ekki er ég sama manneskja og ég var fyrir 10 árum síðan og verð vonandi ekki sama persóna eftir 10 ár. Gildin mín hafa þróast, smekkur minn hefur þróast og hvernig ég lifi mínu lífi hefur einnig þróast.

Ég hef þá skoðun að rýmin sem við búum í eigi að vera endurspeglun af okkur sjálfum, til þess að styðja við okkur sem einstaklinga eða fjölskyldur og styðja við þær persónur sem við munum verða.


Svo þegar við biðjum um "tímalaust" - hvað gerist þá þegar þú þróast sjálfur en umhverfið þitt er enn að endurspegla þá persónu sem þú varst fyrir 10 árum síðan?



Heimilið þitt ætti að endurspegla þig, hvað þú hefur gert, ferðast og gengið í gegnum. Litirnir á veggjunum ættu að láta þér líða vel og leiða þig á þægilegan hátt í gegnum öll rými.


Ef þú ert í raun þessi "Beige" týpa þá skaltu hafa allt "Beige" - en ekki gera það vegna þess að þú sért að þú haldir að þú vaxir ekki uppúr því eða verðir ekki fyrir neinni gagnrýni, heldur vegna þess að þú vilt hafa hlutina einfalda í kringum þig.


Síðustu 20 árin hef ég komið inná hundruðir heimilia, bæði í gegnum sjónvarpsþætti og hönnunarvinnu. Ég hef komið inn sem heimilisráðgjöf (Quick Fix) sem og tekið í gegn stór hús frá grunni. Sem fagaðili þá ráðlegg ég að stærstu fjárfestingarnar séu úr góðum efnum sem endast. Innréttingar, borðplötur, gólfefni, flísar - allt sem í raun tekur mikinn tíma og fjárútlát að endurnýja. En það segir ekkert til um útlit þeirra eða lit- einungis efnið sjálft.


Langfallegustu heimilin sem ég hef komið inn á hafa oftar en ekki verið þau sem eru örlítið óvenjuleg... jafnvel smá skrýtin. Þar sem fólk er ekki hrætt við að hengja upp afgerandi málverk, kveikja á lampanum sem er eins og ís í formi eða lakka skáp í karrýgulum lit.



Það þarf ekki að þýða endilega að allt á heimilinu þurfi að vera skrýtið eða óvenjulegt - en á heimilinu þínu átt þú að geta tekið pláss í að sýna þitt sjálf með stolti og það besta er ... að það bara má alveg breyta seinna!




Comments


bottom of page