top of page

vitnisburðir viðskiptavina

Ægir Þórisson 
Forstjóri Advania 2015 - 2025

„Samstarfið við Sesselju Thorberg og hennar fólk hefur verið einstaklega farsælt. Þau hafa með sinni hönnun umbreytt vinnuaðstöðu okkar í Guðrúnartúni 10 þannig að hún endurspeglar einstaklega vel menningu okkar og gildi. Vinnubrögðin, verkstjórn og nálgun við verkefnið hefur einkennst af fagmennsku og sveigjanleika. Allar þær áætlanir sem gerðar hafa verið hafa staðist bæði hvað varðar tíma og kostnað. “

.

Freyja Steingrímsdóttir
Framkvæmdarstjóri Blaðamannafélags Íslands 

" Fröken fix teymið umbreytti orlofshúsum BÍ í hönnun og framkvæmd. Útkoman eru orlofshús í fremstu röð með hlýlegu yfirbragði með skýra tengingu við einkenni félagsins.

 

Verkstjórn Sesselju við framkvæmdirnar var einnig ómetanleg og öll samskipti til fyrirmyndar."

Linda Björk Pálsdóttir 
Framkvæmdarstjóri Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands

„Við hjá Orlofssjóði Kennarasambands Íslands vorum einstaklega ánægð með samstarfið við Fröken Fix Hönnunarstudio.

Fyrirtækið endurhannaði tvo eldri sumarhús fyrir okkur og gerði eins og nýja.

Þær sáu um verkstýringu á framkvæmdinni sem var ómetanlegt. Að tvinna saman vinnu margra ólíkra iðnaðarmanna og fyrirtækja er flókið, en þeim tókst það með góðum samskiptum og innan tímamarka.

Hönnunin sjálf er hlýleg og umvefjandi, ásamt því að nýta rýmið á betri máta en áður var. „

Lýður Heiðar Gunnarsson 
Framkvæmdarstjóri fjármálasviðs Eikar

Við höfum fengið Sesselju til að taka að sér innanhússhönnun fyrir  okkur í tvígang og í bæði skiptin vorum við einstaklega ánægð með niðurstöðuna.

Hún hefur frábært auga fyrir litasamsetningum og húsbúnaði og veit hvernig best er að tengja saman rými.

Sesselja hvatti okkur til að stíga út fyrir þægindarammann í litavali, sem hefur gert heimilið hlýlegt og persónulegt.

 

Hún hjálpaði okkur við val á húsgögnum, litum á alla veggi hússins, bæði að innan og utan, val á málverkum, sérpöntuðum gardínum og hannaði  sérlausnir fyrir innréttingar í eldhúsinu.

 

Við mælum hiklaust með henni.

Hörður Hilmarsson
Skrifstofustjóri /staðgengill sviðsstjóra
Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar

" Samstarfið við Fröken Fix Hönnunarstudio reyndist afar farsælt.

Fagmennska, skýr hönnunarstefna og frábær

litaskynjun skiluðu okkur vinnustað sem er

bæði fallegur og virkar einstaklega vel í daglegu starfi"

Sigurþór Jónsson 
Rekstrarstjóri Advania 

" Við hjá Advania höfum síðustu  ár staðið í gagngerum breytingum á húsnæði okkar og hefur Fröken Fix Hönnunarstudio leitt okkur í gegn um það ferli allt saman. 

Sesselja er lausnamiðuð og hefur komið með til okkar skemmtilegar og líflegar lausnir. Hún er traust og einstaklega skipulögð og eftirfylgni og vinna með verktökum fyrsta flokks.

Fröken Fix Hönnunarstudio fær mín bestu meðmæli.

Sigurður Helgi Sturlaugsson  
Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins 

"Við erum mjög ánægð með útkomuna og öll samskipti í gegnum verkefnið. Starfsfólkið okkar hefur einnig verið afar ánægt með breytingarnar og hvernig þær hafa bætt bæði umhverfið og vinnuaðstæður.

Fagmennska og gott samstarf einkenndi alla framkvæmdina."

Magga Dóra Ragnarsdóttir 
Stafrænn hönnunarleiðtogi Mennsk.

"Sesselja kom til okkar eftir að við vorum búin að standa í stórtækum breytingum á íbúðinni okkar og í einhverri bugun bara hættum.

Hún endurskipulagði fyrir okkur heila hæð þannig að unglingurinn á heimilinu fékk sérsniðið og súperflott svefnherbergi og foreldrarnir fengu miðaldradrauminn um forstofu þar sem hægt er að koma fyrir allri endurvinnslu, útifötum og þvottahúsi og létta þar með á restinni af íbúðinni.

Það var hugsað fyrir öllu, frá efnisvali í myrkratjöld í unglingaherbergið, aðgengilega og gagnlegar hirslur í forstofu og lýsingu og litaval í borðstofu.  Takk fyrir okkur!"

bottom of page