top of page

Fröken Fix Hönnunarstudio - sagan á bakvið stofuna.

FrokenFix
Sep 17
2 min read

Updated: Sep 18

Sagan okkar er kannski ekki dæmigerð hönnunarsaga — hún byrjar á erfiðum tímapunkti sem breyttist svo síðar í stór tækifæri.


En byrjum á byrjuninni. Ég útskrifaðist með BA í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og vann í mörg ár við sjónvarpsþáttagerð tengdri hönnun og arkitektúr, á flestum sjónvarps- og vefmiðlum landsins, sem og við framleiðslu annarra fjölmiðlaverkefna. Síðar starfaði ég sem innanhússhönnuður og teiknari á arkitektastofu og öðlaðist þar enn meiri færni og reynslu.


Svo stiklað sé á stóru þá kom hrunið svo í oktober 2008 — og arkitektastofur voru strokaðar út með einu pennastriki og komst ég í kjölfarið að því að ég væri með barni. Dálítið sjokk... en í stað þess að láta þetta mikið á mig fá, ákvað ég að nýta meðgönguorlofið í að undirbúa eigið fyrirtæki sem ég var lengi búin að hugsa um. Daginn sem fæðingarorlofinu mínu lauk, september 2010, setti ég Fröken Fix á laggirnar.


Fyrstu árin snerust mikið um heimilishönnun og persónulega ráðgjöf — að hjálpa fólki að finna sinn eigin stíl frekar en að elta tískustrauma. Árið 2013 gaf ég út mína fyrstu bók, "Skapaðu þinn heimilisstíl: trix & mix frá Fröken Fix," þar sem ég opnaði hugmyndabankann sem ég hafði

sankað að mér í gegnum árin.


Upp úr 2014-2015 fóru verkefnin að stækka verulega og ég fann mig í auknum mæli í hönnun vinnustaða fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir — meðal annars Seðlabanka Íslands , aðalskrifstofur Kjörís í Hveragerði og VÍS svo eitthvað sé nefnt. Þetta var því ákveðinn vendipunktur: frá því að vera mest í heimilisráðgjöf og minni verkefnum yfir í umfangsmikil, fjölþætt fyrirtækjaverkefni sem kröfðust dýpri þarfagreiningar og verkefnastjórnunar - eitthvað sem ég fann strax að lá vel fyrir mér og ég brenn fyrir enn þann daginn í dag.


Eftir því sem stofan stækkaði bættust við hæfileikaríkir arkitektar í teymið, í styttri eða lengri tíma sem hefur gert okkur kleift að takast á við enn stærri og flóknari verkefni. Við höfum líka unnið talsvert með öðrum arkitektastofum og lýsingarhönnuðum í gegnum tíðina, bæði í einstökum verkefnum og samkeppnum.



Meðal stærri verkefna sem hafa fylgt í kjölfarið er endurhönnun á skrifstofum og matsal Advania við Guðrúnartún — verkefni upp á um 7.000 fermetra sem unnið var í áföngum yfir sex ára tímabil — og nýlega lukum við, við þúsund fermetra verkefni fyrir Reykjavíkurborg sem krafðist mikillar þróunarvinnu í samstarfi við starfsfólk þeirra. Þú getur skoðað frekar lista yfir alla þá sem við höfum unnið með hér


Fyrir okkur í Fröken Fix Hönnunarstudio snýst hönnun alltaf um sama kjarnann, hvort sem verkefnið er lítið eða risastórt: hún á að vera persónuleg, endurspegla vörumerkið eða manneskjuna á bak við heimilið, og fyrst og fremst — hún á að vera skemmtileg.


Afhverju finn ég þá þörf fyrir að byrja hér greinaskrif? Ég hef lengi hugsað um að skapa vettvang sem myndi dýpka sýn lesenda á okkar verkefni, vera örlítið persónulegri — sýna ferlið, hugsunina og smáatriðin sem liggja að baki hönnuninni. Ég vil líka nýta tækifærið til að beina ljósinu að fólki og verkefnum sem mér finnst áhugaverð, hvort sem það eru samstarfsaðilar eða aðrir hönnuðir sem hafa hrifið mig.

Ég vona að þú fylgist með.


Comments


bottom of page